Tuesday, February 9, 2010

Þriðji þáttur

Það eru alltof margar góðar plötur sem komu út 2009. Ég er ennþá að heyra plötur sem ég gleymdi að tékka á sem ég hefði sett á topp 10 lista ársins.

SOCIAL CIRCKLE er band sem ég er búinn að sjá nefnt víða. Ég sá þessa plötu, City Shock, í London og vildi að ég hefði keypt mér hana. Hún er nefnilega frekar brjáluð. Þeir spila garage-skotið 80's hardcore eins og virðist þykja nokkuð töff í dag og miðað við umslagið á plötunni þá kæmi mér heldur ekkert á óvart að þessir gæjar væru með á nótunum varðandi hvað þyki töff að gera.

Þrátt fyrir að þetta kunni að vera tíska, þá þykir mér ekkert leiðinlegt að fá nokkur svona bönd. SMART COPS og THE SHITTY LIMITS eru t.d. tvö bönd sem ég myndi flokka með þessari bylgju og eru bæði í miklu uppáhaldi hjá mér. SOCIAL CIRCKLE eru samt minna pönk rokk heldur en hin tvö böndin og mun meira hardcore. Það er meiri keyrsla og fleiri hjólabrettamelódíur. Þetta er virkilega klikkuð plata og klárlega ein af bestu plötum síðasta árs.

Garage pönk er líka búið að vera mjög hipp seinustu ár og aftur kvarta ég ekki. Platan Fake Surfers með hljómsveitinni INTELLIGENCE er t.d. ein af ávöxtum garage bylgjunnar sem ég er búinn að vera að hlusta mjög mikið á. Grípandi poppað lo-fi pönk rokk í bland við skemmtilegar upptökutilraunir.
Öll platan finnst mér vera mjög eftirminnileg og hún týnist aldrei í tilraunum heldur fá lögin alltaf að njóta sín og tilraunamennskan nær alltaf að verða mikilvægur hluti af heild laganna.
Það er mikið af svona dóti sem maður heyrir nú til dags en það er eitthvað við þessa plötu. Hún hefur karakter og já... bara virkilega, virkilega góð lög.
Ég hef ekki mikið verið að fylgjast með hvað eigi að koma út í ár en mér skilst að The Red Dons séu með sjötommu sem mun koma út bráðlega og svo plötu í vinnslu. Ég er mjög spenntur. Þessi nýlegri lög sem eru uppi á heimasíðu hljómsveitarinnar (www.reddons.com) lofa öll ótrúlega góðu. Ég gæti alveg trúað þeim til að koma með sprengju ársins. Mér finnst bara synd að það virðist enginn nenna að fylgjast með þeim.